Sementsverksmiðja ríkisins

150. fundur
Fimmtudaginn 01. apríl 1993, kl. 19:02:25 (6751)

     Ingibjörg Pálmadóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það er ágætt að fá það hreint út að hv. þm. gerir engan greinarmun á einokunarfyrirtæki og almennu fyrirtæki sem er í samkeppni. Þetta finnast mér tíðindi því ég geri mikinn greinarmun á því.
    Hv. þm. fór ekki nánar inn á það áðan hversu mikill munur er á afstöðu hans og hv. 5. þm. Vesturl. Af því hef ég verulegar áhyggjur og tel að það munu margir taka eftir því á Akranesi að honum finnst eðlilegt að selja hutabréf í þessu fyrirtæki. Af því að hann kom inn á Járnblendifélagið á Grundartanga þá hef ég ekki heyrt því hreyft að það eigi að setja hlutabréf á hinn opinbera markað frá Járnblendifélaginu á Grundartanga.