Sturla Böðvarsson
(andsvar)
:
Virðulegur forseti. Ég lít nú svo á að áhyggjur hv. 3. þm. Vesturl. hljóti að vera vegna þess að hann óttist að ríkið sleppi hendi af þessu fyrirtæki. Ég tók það skýrt fram að ég teldi að við núverandi aðstæður ætti ríkið að eiga meiri hluta í þessu fyrirtæki þótt það yrði gert að hlutafélagi. Ég hef aldrei í þessari umræðu getið þess að það ætti að selja hlutabréf í fyrirtækinu þannig að ríkið missti þann meiri hluta. En ég gat þess að ég teldi eðlilegt að opna fyrir þann möguleika að auka hlutafé í félaginu þannig að aðrir kæmust að án þess þó að ríkið missti þar meiri hluta. Það er það sem ég held að hv. 3. þm. Vesturl. ætti að hugsa um og velta fyrir sér. En ég hef ekki lagt til að fyrirtækið yrði selt að meiri hluta úr hendi ríkisins.