Sementsverksmiðja ríkisins

150. fundur
Fimmtudaginn 01. apríl 1993, kl. 19:34:25 (6762)

     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseti biður hv. þm. að líða sér það að gefa eins og 5 mínútna hlé meðan ráðgast verður um framhald þessa fundar. --- [Fundarhlé.]
    Það hefur orðið niðurstaða forseta og formanna a.m.k. þriggja þingflokka að við reynum að ljúka umræðum um Sementsverksmiðju ríkisins ef þingmenn mótmæla því ekki. Síðan mun hv. 9. þm. Reykv. tala fyrir 15. dagskrármálinu, ráðherra svara honum og þar með ljúki fundinum og umræðum um málið verði frestað.