Varamaður tekur þingsæti

152. fundur
Mánudaginn 05. apríl 1993, kl. 13:32:01 (6807)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf, dags. 5. apríl 1993:
    ,,Þar sem Ólafur Þ. Þórðarson, 2. þm. Vestf., er á förum til útlanda í opinberum erindum og getur því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér að beiðni hans með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Framsfl. í Vestfjarðakjördæmi, Pétur Bjarnason fræðslustjóri, Ísafirði, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.``
    Undir þetta bréf ritar Páll Pétursson, formaður þingflokks Framsfl.
    Pétur Bjarnason hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa.