Tilkynning um utandagskrárumræðu

152. fundur
Mánudaginn 05. apríl 1993, kl. 13:33:51 (6808)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti vill geta þess að tvær utandagskrárumræður eru fyrirhugaðar hér í dag. Kl. 3.30 fer fram utandagskrárumræða að beiðni hv. 3. þm. Norðurl. v., Ragnars Arnalds, um málefni SÁÁ. Sú umræða fer fram skv. fyrri mgr. 50. gr. þingskapalaga.
    Kl. 4 er fyrirhuguð utandagskrárumræða að beiðni hv. 1. þm. Norðurl. v. um málefni Ríkisútvarpsins. Sú umræða fer fram skv. síðari mgr. 50. gr. þingskapalaga en samkomulag hefur orðið um að hún standi í eina klukkustund.