Sementsverksmiðja ríkisins

152. fundur
Mánudaginn 05. apríl 1993, kl. 14:11:10 (6817)

     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hv. 5. þm. Vesturl. fyrir að hafa leiðrétt þennan misskilning. Greinilegt er að hann vill selja Sementsverksmiðjuna þegar frv. verður að lögum. Út af fyrir sig er mikilvægt að það liggi fyrir að þingmenn Sjálfstfl. af Vesturlandi séu báðir sömu skoðunar í málinu.
    Varðandi málið að öðru leyti vil ég leyfa mér að nefna það, virðulegi forseti, þó að það samrýmist ekki þingsköpum í ströngustu túlkun að ég mun biðja um orðið á eftir til að svara hv. 17. þm. Reykv. Það tekur meiri tíma en tvær mínútur.