Sementsverksmiðja ríkisins

152. fundur
Mánudaginn 05. apríl 1993, kl. 15:31:02 (6846)

     Jóhann Ársælsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég var ekki að tala um lífeyrissjóðinn, ég var að tala um starfið. Ef þeim verður sagt upp hjá þessu nýja fyrirtæki standa þeir ekki í sömu sporum gagnvart sínum atvinnuveitanda og þeir gera gagnvart honum í dag. Það á auðvitað að horfa í kjör manna og aðstöðu þó að þeir séu fáir. Ekki er um marga að ræða í þessu tilviki en þeir eru samt til.