Sementsverksmiðja ríkisins

152. fundur
Mánudaginn 05. apríl 1993, kl. 15:34:22 (6851)


     Iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson) (andsvar) :
    Frú forseti. Vegna þessara orða hv. 2. þm. Vesturl. vil ég vekja athygli á því að þegar lögum er breytt er það án undantekninga gert til þess að bæta lögin. Það er a.m.k. hið venjulega viðhorf þeirra sem flytja lagafrumvörp. Í öllum þeim atriðum sem hv. þm. nefndi er auðvelt að sýna fram á að réttarstaðan er betri eftir að frv. hefur verið samþykkt en hún var skv. lögum nr. 35/1948, um Sementsverksmiðju ríkisins.