Svavar Gestsson :
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. heilbr.- og trmrh. fyrir þau svör sem hann gaf. Ég skil hann þannig að það sé a.m.k. gefinn mánaðarfrestur í viðbót í þessu máli en ég vil spyrja hæstv. ráðherra að því: Hefur hann tryggt að ekki verði tekin ákvörðun um lokun á Staðarfelli fyrr en athugun málsins er lokið? Ég held að það sé mjög nauðsynlegt að svarið við þessari spurningu liggi fyrir þannig að menn viti að hverju þeir ganga þegar þeir hefja athugun á þessu máli.
Ég tek undir það sem fram hefur komið hjá mörgum hér eins og hv. síðasta ræðumanni að þegar fjárlögin voru afgreidd gerðum við ráð fyrir því að tryggt væri að Staðarfell yrði opið allt þetta ár. Það byggði ég m.a. á umræðum sem fóru fram um málið og á viðtölum sem ég átti við fjárlaganefndarmenn bæði úr stjórn og stjórnarandstöðu. Þess vegna er ég þeirrar skoðunar að ákvörðunin um lokun á Staðarfelli hafi í raun og veru komið í bakið á mönnum og sé þess vegna líka óeðlileg.
Að lokum vil ég segja það, virðulegi forseti, að í ræðu hæstv. ráðherra kom fram að fjármunina frá Staðarfelli á að nota til að auka starfsemina í Vík. Ég tel að þetta sé óeðlileg niðurstaða, ég segi það alveg eins og er, gersamlega óeðlileg niðurstaða og ég veit ekki til þess að Alþingi hafi heimilað það að neinu leyti. Þó að hér sé um frjáls félagasamtök að ræða þá er það auðvitað þannig að hæstv. heilbr.- og trmrh. ræður því samkvæmt lögum hvaða þjónusta er veitt og hvar. Þess vegna skora ég á hann að fylgja yfirlýsingum sínum hér eftir í þessu efni og auðvitað getur farið svo að það verði nauðsynlegt fyrir hann og Alþingi og fjárln. að opna allar bækur SÁÁ, bæði nú á þessu ár og undanfarin ár til þess að ná eðlilegri niðurstöðu í málinu.