Ráðning framkvæmdastjóra ríkissjónvarpsins

152. fundur
Mánudaginn 05. apríl 1993, kl. 16:23:42 (6869)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti vill gjarnan upplýsa það að nú eru 15 hv. þm. og ráðherrar á mælendaskrá. Ef allir tala í fjórar mínútur þá tekur það lengri tíma en ætlað var svo forseti beinir því til þingheims að taka tillit til þessa svo að allir sem óska geti fengið að taka til máls.