Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson)
:
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir brtt. og nál. við frv. til laga um breytingu á tollalögum, nr. 55/1987, og lögum nr. 97/1987, um vörugjald, með síðari breytingum. Þetta er eitt af þessum EES-málum og snýst um það að fella niður tolla af ýmsum vörum en taka í stað upp vörugjald. Í heild er ekki um miklar tekjubreytingar að ræða fyrir ríkissjóð og skattheimta verður því í heildina tekið svipuð og áður hefur verið þó með veigamiklum undantekningum.
Í fyrsta lagi er tekinn upp ytri tollur upp á 7,5% þar sem vörum sem koma frá hinu Evrópska efnahagssvæði er hyglað eins og þessi 7,5% gefa tilefni til. Eins er stigið það skref að fella niður tolla á steypu, járni og gleri og ýmsum skyldum byggingarefnum.
Ég ætla að kynna brtt.:
1. Lagt er til að við 1. gr. bætist ákvæði um heimild til niðurfellingar tolla á aðföngum til skipaviðgerða.
2. Lagt er til að orðalag 5. mgr. 2. gr. verði gert skýrara og víðtækara þannig að heimild fjmrh. til að fella niður eða lækka tolla nái til allra vara sem verðjöfnunargjald er lagt á, hvort sem þær koma frá EES eða öðrum löndum.
3. Lagðar til breytingar á 4. gr. sem eru í þremur liðum: Í fyrsta lagi verði ráðherra, til að taka af öll tvímæli, veitt heimild til að lækka ytri toll á þeim vöruflokkum sem samningurinn um hið Evrópska efnahagssvæði tekur til. Í öðru lagi er lagt til að bætt verði við nokkrum tollskrárnúmerum í 3. tölul. sem láðst hafði að geta í frv. og loks að bætt verði 4. tölul. tollnúmerum skriðdreka og bifhjóla til að gera upptalninguna tæmandi. Má segja að þetta sé ekki mikilvægt varðandi skriðdrekana en kannski annað með bifhjólin. En rétt skal vera rétt.
4. Lagt er til að tvær nýjar greinar komi inn í frv. Annars vegar bætist við grein er veitir ráðherra heimild til að miða vörugjaldsstofn tilgreindra innfluttra vöruflokka við vörugjaldsstofn innfluttra vara skv. 6. gr. vörugjaldslaganna og hins vegar komi ákvæði sem heimili skattyfirvöldum að meta eðlilegt heildsöluverð vöru þegar framleiðandi eða heildsali vöru er jafnframt smásali hennar og ekkert opinbert heildsöluverð liggur fyrir.
5. Lögð er til sú breyting á 6. gr. að gjalddagi vörugjalds verði í þriðja mánuði frá lokum uppgjörstímabils en óheppilegt þykir að gjalddagi vörugjalds og virðisaukaskatts sé í sama mánuði. Þetta kemur sér sérstaklega vel fyrir íslenskan iðnað sem vörugjald hefur verið lagt á en það hefur verið erfitt að fjármagna útgreiðslur einmitt þegar gjalddagi vörugjalds og virðisaukaskatts hefur fallið saman.
6. Lagt er til að gildistaka breytist þannig að hún miðist við 1. júlí 1993 en þó frestist gildistakan sjálfkrafa ef EES tekur ekki gildi.
7. Lögð er til viðbót í ákvæði til bráðabirgða og felur hún í sér að vörugjald af byggingarvörum falli niður en þeir vöruflokkar sem um er að ræða eru sement, steinsteypa og skyldar vörur, svo og steypustyrktarjárn og gler. Breytingunni er ætlað að hafa áhrif til lækkunar á byggingarkostnaði og styrkja þannig aðgerðir til eflingar atvinnustarfsemi og lækka útgjöld heimila og atvinnurekstrar vegna áhrifa á lánskjaravísitölu. Það er lagt til að þessi breyting taki þegar gildi.
Um þetta mál hefur verið allmikið fjallað í nefndinni. Málið fór víða til umsagnar og mikill fundur haldinn um þetta í nefndinni með hagsmunaaðilum. Ég vil þakka samstarfsmönnum mínum í nefndinni kærlega fyrir ágætt samstarf um þetta mál.
Virðulegi forseti. Ég læt máli mínu lokið.