Vörugjald af ökutækjum

152. fundur
Mánudaginn 05. apríl 1993, kl. 18:58:31 (6896)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Þetta er sama tala og kom fram með þeirri aðferð sem áðan var notuð þar sem einn takkinn var sjálfvirkur og væntir þá forseti þess að hv. þm. séu sammála forseta um að þetta sé í lagi að þessu sinni. Forseti vill jafnframt þakka ábendinguna og biður velvirðingar á því að hafa tekið hana í léttari tón en vera bar miðað við aðstæður. Mun forseti nú gæta þess að vera alvarlegri næst þegar svona lagað gerist.