Sveitarstjórnarlög

154. fundur
Þriðjudaginn 06. apríl 1993, kl. 21:39:47 (6955)

     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það kemur fram í skýrslu sveitarfélaganefndar að hún leggur til að félmrn., menntmrn., fjmrn., samtök kennara og Samband ísl. sveitarfélaga undirbúi tillögur sem miði að því að rekstur grunnskóla flytjist að fullu yfir til sveitarfélaga frá og með 1. ágúst 1995. Ég hygg að verði frv. þetta samþykkt þá verði fljótlega skipuð slík nefnd sem fari þá yfir það mál og það er reyndar líka verkefni samráðsnefndarinnar sem á að undirbúa tillögur um verkefnatilfærslu að skoða það mál í samráði við viðkomandi fagráðuneyti.