Sveitarstjórnarlög

154. fundur
Þriðjudaginn 06. apríl 1993, kl. 21:49:22 (6965)


     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vísa því á bug að ég sé að segja eitthvað annað í viðtali í útvarpi varðandi þessa lágmarksíbúatölu en ég er að segja hér. Ég held að ég geti alveg fullyrt það að ég sagði ekki meira þar sjálf en að ég teldi að þetta þyrfti að koma til alvarlegrar skoðunar og það er kannski ástæða til þess að grafa upp viðkomandi viðtal til þess að vita hvort okkar hefur rétt fyrir sér. Mig minnir þó að lengra hafi verið gengið þegar þessi frétt var kynnt af fréttamanni í fyrirsögn þar eða í inngangi en efni stóðu til miðað við það sem ég sagði sjálf.