Framhald þingfundar

154. fundur
Þriðjudaginn 06. apríl 1993, kl. 22:48:51 (6983)


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Ef það mætti verða til lausnar þeim ágreiningi sem hér er upp kominn hefur forseti gert könnun á því að a.m.k. þrír hv. formenn þingflokka og varaformaður eru hér í húsinu og forseti vildi nú beiðast þess að fá að gera fimm mínútna hlé til að ræða við þingflokksformennina. Og verði því ekki mótmælt verður nú gert fimm mínútna hlé á þessum fundi. --- [Fundarhlé.]