Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. fyrir að fylgjast jafnnáið með almanakinu fyrir mína hönd og hann gerir. Ég vil aðeins nefna vegna þessa máls en þetta hefur iðulega verið rætt í þingsalnum og mönnum því málið kunnugt, að upphaflega var frá því greint að lagðar hefðu verið fram í ríkisstjórn tillögur þess efnis að leitast yrði við að bæta þann þorskbrest eða jafna þann þorskbrest sem leiddi af aflaúthlutunum í landinu með þrenns konar hætti eða frá þremur aðilum.
1. Frá Atvinnuleysistryggingasjóði.
2. Frá ríkissjóði.
3. Frá Fiskveiðasjóði.
Þegar þessar hugmyndir og tillögur voru lagðar fram, þá kom upp mikil andstaða frá hagsmunaaðilum m.a. og frá þingmönnum sem fundu þessum hugmyndum flest til foráttu og það bárust mikið af álitum og bréfum frá hagsmunaaðilum þar sem þeir andmæltu því að þessari aðferð og þessum tillögum yrði fylgt fram og þær næðu fram að ganga.
Í annan stað var einn af þessum aðilum, Fiskveiðasjóður, andvígur því að ganga til þessa verks að sínum hluta til. Ég tel að það hafi ekki verið nægilega málefnalega rökstutt af hálfu Fiskveiðasjóðs að taka þá afstöðu. En þessir þættir urðu auðvitað til þess að málin fóru í bið. Andstaða þeirra aðila sem áttu að njóta þessara bóta varð auðvitað til þess líka að ýta undir það að þetta mál færi í bið. Ég hef hins vegar alla tíð verið þeirrar skoðunar að það væri réttlætismál að koma til móts við þá aðila sem fyrir mestri þorskskerðingu urðu og ég tek það fram að málinu hefur ekki verið lokið. Ýmsir töldu þó, þar með innan ríkisstjórnar, að þær miklu breytingar sem gerðar voru í nóvembermánuði þar sem var létt stórum fjárhæðum af atvinnulífinu, þar með talið sjávarútveginum, breytingar voru gerðar á gengi, að þar með hafi forsendur breyst og því þyrfti ekki frekar að fjalla um þessar tillögur. Ég hef ekki verið þeirrar skoðunar og aðrir ráðherrar ýmsir í ríkisstjórn voru mér sammála um það, að engu að síður ættu menn að horfa til þess að ýmsir aðilar í sjávarútvegi hefðu orðið verr úti í þessum efnum en félagar þeirra og samkeppnisaðilar. Þessi mál hafa verið rædd nú í tengslum við gerð kjarasamninga og eru orðin þáttur í þeim og tengjast þeim og ég tel að þær niðurstöður sem þar munu fást verði gengið til kjarasamninga nú á næstu tveimur dögum eða svo, muni mjög uppfylla þau sjónarmið sem hv. þm. hefur og jafnvel þau sjónarmið sem ég hef þannig að nú getur þingmaðurinn farið að búa til nýtt almanak um það hvenær þessi lausn verður. Ég nefni nú 2--3 daga, en það tengist því að þessir kjarasamningar gangi eftir. Ég treysti því að þingmaðurinn varðveiti almanakið fyrir mig í framtíðinni jafn vel og hingað til.