Útflutningur hrossa

157. fundur
Fimmtudaginn 15. apríl 1993, kl. 13:42:53 (7076)


     Frsm. landbn. (Egill Jónsson) :
    Virðulegi forseti. Það er skemmst frá því að segja að landbn. fjallaði ekki um markaðsmál hrossa að þessu sinni heldur aðeins um þann þáttinn sem laut að afgreiðslu málsins, þ.e. fyrirkomulagi á útflutningsvottorðum og skoðunargjöldum.