Flm. (Tómas Ingi Olrich) :
Virðulegi forseti. Hv. þm. Jóna Valgerður Kristjánsdóttir fór nokkrum orðum um þetta frv. og vil ég þakka henni fyrir góðar undirtektir við frv. Eitt atriði kom fram í hennar máli sem vakti athygli mína, en það var að hv. þm. taldi að ef um íbúðaskipti væri að ræða, þá væru slík íbúðaskipti ekki efni til skattlagningar. Ég hygg að þetta hljóti að vera nokkuð misjafnt eftir skattumdæmum. Ég tel mig hafa upplýsingar um það að einmitt slík íbúðaskipti hafi orðið tilefni til skattlagningar og tel ég mig þekkja eitt slíkt dæmi.
Í raun og veru má líka líta svo á að samkvæmt laganna hljóðan eigi slík íbúðaskipti að verða efni til skattlagningar hjá þeim sem fær íbúð í skiptum fyrir sína íbúð í heimabyggð.
Ég vil taka það fram að það er alveg hárrétt hjá hv. þm. að það fylgja ekki þessu frv. útreikningar á því hversu mikil útgjöld þetta getur þýtt fyrir ríkissjóð eða hversu mikið tekjutap það getur þýtt fyrir ríkissjóð. Frv. var að vísu sent til fjmrn. en þaðan barst aðeins óformleg umfjöllun um það. Ég hygg hins vegar að þarna sé um frekar litlar fjárhæðir að ræða og megináherslu hef ég nú lagt í flutningi þessa máls á að það er í raun og veru verið að skattleggja með þeim hætti sem nú er á þessum málum tekjur sem ekki eru raunverulegar tekjur.
Ég vil að lokum þakka hv. 6. þm. Vestf., Jónu Valgerði Kristjánsdóttur, fyrir undirtektir við þetta frv.