Breyting á dagskrá

159. fundur
Mánudaginn 19. apríl 1993, kl. 13:50:17 (7158)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti vill nú benda á að málum á þessari dagskrá hefur ekki verið breytt. Það hefur aðeins verið fært til eitt mál ofar á dagskrána. Það var fært upp fyrir önnur mál sem voru fyrir ofan. En úr því að þessi eindregna ósk hefur borist hér þá er það forseta a.m.k. að meinalausu að taka hér fyrst fyrir 10. dagskrármálið.