Almannatryggingar

159. fundur
Mánudaginn 19. apríl 1993, kl. 14:03:22 (7163)

     Heilbrigðisráðherra (Sighvatur Björgvinsson) (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég bið enn forláts. Ég verð að viðurkenna að mér heyrðist það á rödd hv. þm. hér áðan að hv. þm. væri særður en að eigin áliti var hann það ekki heldur var hv. þm. reiður. Ég bið bara forláts á að hafa misskilið tóninn í rödd hv. þm. og vona að ég geri það ekki aftur.