Varamaður tekur þingsæti

160. fundur
Þriðjudaginn 20. apríl 1993, kl. 13:33:01 (7227)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf, dags. 20. apríl 1993:
    ,,Þar sem Guðmundur Hallvarðsson, 16. þm. Sjálfstfl. í Reykjavíkurkjördæmi, er erlendis og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Sjálfstfl. í Reykjavíkurkjördæmi, Þuríður Pálsdóttir yfirkennari, taki sæti

á Alþingi í fjarveru hans.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.

Geir H. Haarde, formaður þingflokks Sjálfstfl.``

    Þuríður Pálsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.