Sala m/s Heklu

160. fundur
Þriðjudaginn 20. apríl 1993, kl. 13:42:36 (7233)

     Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) :
    Hæstv. forseti. Eins og ég hélt raunar að þingmönnum væri kunnugt voru skip Skipaútgerðar ríkisins sett í sölu. Það var öllum frjálst að leggja inn formlegt tilboð um kaup á hverju skipi fyrir sig eða þeim öllum. Ekkert slíkt tilboð barst eins og hér hefur verið lýst.