Forsætisráðherra (Davíð Oddsson)
:
Hæstv. forseti. Ég er hv. þm. algerlega sammála um að það er afskaplega mikilvægt að skilyrði séu sköpuð til þess að vextir megi lækka. Reyndar hafa vextir farið lækkandi og eru nú með því lægsta sem hefur verið um langt bil. Ég er líka þeirrar skoðunar að eitt mikilvægasta verkfærið í þeim efnum að skapa skilyrði til frekari vaxtalækkunar sé stöðugleiki og vissa um framtíðarþróun í efnahagsmálum og þar séu því kjarasamningar til lengri tíma frekar en skemmri mjög mikilvægt innlegg í málið.