Reglugerð um sölu og veitingar áfengis

160. fundur
Þriðjudaginn 20. apríl 1993, kl. 13:58:18 (7247)

     Anna Ólafsdóttir Björnsson :
    Virðulegi forseti. Fyrst svo er, þá er aðeins einu atriði í minni fyrirspurn ósvarað og það er hvort hæstv. dómsmrh. telji það eðlilegt að taka svo veigamikla ákvörðun, sem ég tel að hér sé á ferðinni, með þessum hætti þótt lög heimili eða hvort þetta sé hugsanlega eitthvað sem ætti frekar að ræðast í víðara hópi heldur en einungis innan ráðuneytisins.