Jöfnunargjald á innfluttar landbúnaðarafurðir

160. fundur
Þriðjudaginn 20. apríl 1993, kl. 14:01:39 (7250)

     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) :
    Hæstv. forseti. Þetta mál var tekið upp á fundi landbn. í morgun og eftir þeim spurnum sem ég hef haft af þeim nefndarfundi hefur þar verið eytt óvissu og ég hef í rauninni ekki meiru við það að bæta sem ég hef áður sagt að skilningur ríkisstjórnarinnar í þessum efnum er afdráttarlaus. Það verða lögð jöfnunargjöld á kjötvörur við innflutning til landsins í pöstu og pitsu. Hitt er athyglisvert að innflutningur á kjöti í pitsu var án jöfnunargjalds og tolla á þeirri tíð sem fyrirspyrjandi var landbrh.