Jöfnunargjald á innfluttar landbúnaðarafurðir

160. fundur
Þriðjudaginn 20. apríl 1993, kl. 14:05:59 (7255)

     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) :

    Hæstv. forseti. Hann er ráðríkur, forveri minn. Hann vill fá að ráða annarra orðum.
    Ég ítreka það sem ég sagði. Það eru heimildir fyrir því að leggja jöfnunargjöldin á. Sú ákvörðun hefur verið tekin að gera það sem ekki var gert í tíð síðustu ríkisstjórnar og það var tekin ákvörðun um það eftir stjórnarskiptin að Íslendingar ættu fulltrúa þar sem landbúnaðarmál voru rædd í tengslum við samningsgerðina um Evrópska efnahagssvæðið, gagnstætt því sem áður var.