Jóna Valgerður Kristjánsdóttir
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Ég hef í sjálfu sér ekkert á móti því að það yrði lagður hátekjuskattur á þá apótekara sem kannski hafa nokkrar milljónir, 5 millj. kannski, við getum nefnt það, eða meira í árstekjur, þó að sá skattur yrði kenndur við mig. Ég mundi alveg örugglega standa undir því. En við verðum náttúrlega ekki sammála um það hvernig eigi að ná niður lyfjaverði, við hv. þm. Árni Mathiesen. Hann trúir á það að samkeppnin muni ná niður verðinu. Ég trúi engan veginn á það, ég hef sýnt fram á með rökum hér á undan að það getur tæplega gerst. Ég get auðvitað ekki fullyrt það, ekki frekar en hann getur fullyrt að samkeppnin og frjálsræðið muni hugsanlega leiða til lækkunar á verði.
Það er líka svolítið einkennilegt þegar hann svarar því til að það muni jafnvel ekki verða neitt fleiri verslanir? Til hvers þá? Ég bara spyr.