Svavar Gestsson
(andsvar)
:
Virðulegur forseti. Hv. 1. þm. Vesturl. verður auðvitað að hafa það eins og honum sýnist hvað honum finnst ankannalegt og hvað ekki. Ég nenni ekki að vera að röfla um það við hann á síðkvöldi. Ég var heldur ekki að biðja um að samtök sveitarfélaga á Suðurnesjum fögnuðu tillögum Alþb. Það er alltaf þessi flokkspólitíski naglaskapur í Sjálfstfl. Aldrei er hægt að horfa yfir málin eins og þau eru. Við erum ekki að tala um Alþb. og hagsmuni þess. Við erum að tala um atvinnulaust fólk í landinu. Skilur þingmaðurinn það ekki?