Atvinnuleysistryggingar

160. fundur
Þriðjudaginn 20. apríl 1993, kl. 21:51:44 (7330)

     Sturla Böðvarsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Hv. þm. vill víkja sér undan pólitískri umræðu og veigrar sér við flokkspólitískri umræðu en heldur hér langa ræður um hina köldu hönd markaðshyggjunnar. Fróðlegt væri að vita hver andstæða þeirrar köldu handar væri, hvort það væri eitthvert nýtt markaðskerfi sem Alþb. gæti fremur hallað sér að í dag.