Atvinnuleysistryggingar

160. fundur
Þriðjudaginn 20. apríl 1993, kl. 21:59:47 (7339)

     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Hæstv. heilbr.- og trmrh. hefur greinilega ekki gert sér grein fyrir því sem er viðhorf þjóðarinnar um þessar mundir. Þegar hann talar þannig um eitthvert mál að það sé vitlaust og það sé slæmt og það sé hrákasmíð og það sé hneyksli og að ekki hefði átt að flytja það þá eru það talin meðmæli með málinu. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að flytja þessa stuðningsræðu með frv. Alþb.