Húsnæðisstofnun ríkisins

160. fundur
Miðvikudaginn 21. apríl 1993, kl. 01:45:15 (7380)

     Flm. (Margrét Frímannsdóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga á þskj. 696 um breytingu á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins, nr. 86/1988, með síðari breytingum.
    Frv. þetta er aðeins tvær greinar. Í 1. gr. er lagt til að við 11. gr. laganna um Húsnæðisstofnun ríkisins bætist nýr töluliður er orðist svo:
    ,,4. Lán til endurbóta eða útrýmingar á heilsuspillandi húsnæði.``
    2. gr. er gildistökuákvæði, að lög þessi öðlist þegar gildi.
    Í 11. gr. laga um Húsnæðisstofnun ríkisins er tilgreint hverjir geta notið láns úr Byggingarsjóði ríkisins. Með frumvarpi þessu er lagt til að við greinina bætist nýr töluliður er felur í sér heimild handa sjóðnum til að veita jafnframt lán til endurbóta eða útrýmingar heilsuspillandi húsnæði.
    Þegar núgildandi lög um Húsnæðisstofnun ríkisins voru sett á árinu 1988 var gert ráð fyrir að Byggingarsjóður ríkisins gæti veitt lán til útrýmingar á heilsuspillandi húsnæði. Það ákvæði var fellt brott með lögum nr. 70/1990.
    Rökin fyrir því að fella heimildina brott voru þau að lánsumsóknir vegna þessa væru afar fáar og álit manna að þær féllu undir ramma laganna annars staðar eftir breytingarnar. Ákvörðun þessi sætti á sínum tíma töluverðri gagnrýni og efasemda gætti meðal hv. þm. um að þetta mundi reynast rétt. Það hefur síðar komið í ljós að ekki hefur reynst unnt að afgreiða allar umsóknir sem borist hafa vegna endurbóta eða útrýmingar á heilsuspillandi húsnæði. Ástæða þess er sú að lagaheimildir vantar. Vegna þessa liggja óafgreiddar lánsumsóknir hjá Húsnæðisstofnun ríkisins eða að þeim hefur verið hafnað. Þetta eru lánsumsóknir sem ekki er með nokkru móti hægt að fella undir lögin um félagslegt húsnæði þar sem ekki er um nægjanlegar tekjur að ræða til þess að viðkomandi umsækjandi eigi lánsmöguleika í húsbréfakerfinu. Hér er t.d. átt við nokkra ábúenda lögbýla sem ekki falla innan ramma núverandi lánakerfis. Þeir sem geta sótt um lán til félagslegra íbúða eru sveitarfélög eða félagasamtök. Þar hafa framkvæmdaaðilar kaupskyldu og síðan forkaupsrétt þegar til endursölu íbúða kemur. Ekki er mögulegt samkvæmt núgildandi reglum að veita félagslegt íbúðalán vegna lögbýla vegna þess að þar fylgir jörðin með. Reglur um innlausnir og endursölu koma í veg fyrir að hægt sé að byggja félagslega íbúð á eignarjörð eða bújörðum. Því situr efnalítið fólk er býr á lögbýlum eða bújörðum ekki við sama borð og þeir sem búa í sveitarfélögum, þorpum, kaupstöðum eða hér í borginni og eiga rétt á lánum í félagslega húsnæðiskerfinu.
    Ég þekki dæmi þess að ungt fólk sem býr í lélegu húsnæði á lögbýli getur ekki byggt nýtt húsnæði eða endurbætt núverandi íbúðarhúsnæði vegna þess að það á engan lánsrétt.
    Árið 1985 festu ung hjón í Skaftárhreppi kaup á jörð ásamt mannvirkjum sem tilheyra jörðinni, þar með talið lítið íbúðarhús sem byggt var árið 1933 og var því eðlilega orðið frekar lélegt. Í óveðrinu í febrúar 1991 skemmdist íbúðarhúsið mjög illa svo ekki hefur verið búið í því síðan nema yfir sumarmánuðina. Heilbrigðisnefnd Skaftárhrepps hefur skoðað og metið húsið og skilað greinargerð. Í niðurstöðu þeirrar greinargerðar kemur fram að húsið er við núverandi aðstæður með öllu óíbúðarhæft og að viðgerð borgi sig ekki. Ungu hjónin sem eiga þrjú börn eru illa stödd. Þau hafa sótt um lán til Húsnæðisstofnunar en þar sem þau búa á lögbýli hefur ekki verið hægt að afgreiða umsókn þeirra jákvætt. Skaftárhreppur hefur einnig sótt um lán til að byggja félagslega kaupleiguíbúð á jörðinni en ekki er heldur hægt að verða við því af ástæðum sem ég nefndi áðan. Jörðin fylgir húsinu og getur ekki fallið undir lög um úthlutun í félagslega kerfinu. Sveitarstjórnin sendi greinargerð með umsókn sinni til Húsnæðisstofnunar. Þar segir m.a., með leyfi forseta:
    ,,Vegna þekktra aðstæðna í hefðbundnum greinum landbúnaðar hafa tekjur fjölskyldunnar af búrekstrinum verið lágar hingað til en með því að stunda tilfallandi atvinnu samhliða hefur þeim tekist að standa við allar sínar skuldbindingar. Jörðin býður hins vegar upp á ýmsa vannýtta möguleika til fjölbreyttari búskapar sem aukið geta tekjur þeirra í framtíðinni. Í því sambandi má nefna t.d. skógrækt, leigu eða sölu sumarbústaðalóða og lax- og silungsveiði. Takmarkaðar tekjur af búinu hingað til gera það hins vegar að verkum að möguleikar þeirra til lána úr almennu húsnæðislánakerfi ríkisins eru ófullnægjandi. Fram til ársins 1990 gafst sveitarfélögum í landinu kostur á hagstæðum lánum til útrýmingar á heilsuspillandi húsnæði. Fjölmörg dæmi eru um að slík lán hjálpuðu fólki í svipaðri aðstöðu og að framan er lýst. Með lögum nr. 70/1990 var þessi lánaflokkur hins vegar felldur niður og svo virðist sem ekkert hafi komið í staðinn fyrir aðila utan þéttbýlisstaða sem þarfnast sérstakrar fyrirgreiðslu.
    Íbúðarhúsnæði á nokkrum bújörðum í Skaftárhreppi er enn með þeim hætti að miðað við nútímaþarfir verða þar naumast eðlileg kynslóðaskipti nema að þeim sem við taki gefist kostur á lánafyrirgreiðslu líkt og öðrum með sambærilega tekjumöguleika. Hver sveitarstjórn hlýtur að telja hagsmunum síns sveitarfélags best borgið með því að ungt fólk vilji búa þar. Skiptir þá ekki máli hvort fólk kýs að búa í þéttbýli eða á bújörð sem veitt getur viðunandi afkomu.
    Sveitarstjórn Skaftárhrepps skorar því á stjórn Húsnæðisstofnunar ríkisins að taka tillit til erfiðra aðstæðna fjölskyldunnar sem að framan er getið og veita Skaftárhreppi lán til byggingar félagslegrar kaupleiguíbúðar á jörðinni og með því að gera þeim kleift að búa þar áfram. Jafnframt er óskað eftir því að málið fái skjóta afgreiðslu vegna eðlis síns.
    Virðingarfyllst, Bjarni Matthíasson oddviti.``
    Af ástæðum sem ég hef áður rakið er ekki hægt að verða við þeirri ósk að sveitarfélagið byggi félagslegt húsnæði á bújörðinni.
    Það var ekki ætlunin við samþykkt þeirra breytinga sem gerðar voru á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins 1990 að mismuna fólki með þessum hætti og afar mikilvægt að lánsrétturinn sé sá sami eða sambærilegur hvort sem búið er í dreifbýli eða þéttbýli. Vissulega má athuga hvort ekki sé hægt að breyta lögum um úthlutun lána í félagslega húsnæðiskerfinu til þess að bæta úr þessu og mér hefur skilist að hæstv. félmrh. hafi skipað nefnd sl. sumar sem sé að athuga þann möguleika. Við flm. þessa frv. leggjum hins vegar til að aftur verði tekin inn í lögin um Húsnæðisstofnun ríkisins heimild til lána vegna endurbóta eða útrýmingar á heilsuspillandi húsnæði.

    Mér er kunnugt um að umsóknir vegna þessa hafa borist frá ábúendum lögbýla og að þær er ekki hægt að afgreiða þrátt fyrir augljósa þörf. Því vona ég að hv. þm. reynist jákvæðir gagnvart þessu frv. og það hljóti skjóta afgreiðslu.
    Kostnaður sem samþykkt þess hefði í för með sér yrði óverulegur ef nokkur, hér er aðeins um örfáar umsóknir að ræða. Eftir því sem mér er sagt hafa þær verið 2--3 á ári og því hægt að afgreiða þær innan þess fjárlagaramma sem Húsnæðisstofnun hefur.
    Ég til að að lokinni þessari umræðu verði frv. vísað til hv. félmn.