Stefán Guðmundsson
:
Virðulegi forseti. Ég leyfi mér hér að vitna til þess sem segir á þskj. 956:
,,Guðni Ágústsson og Stefán Guðmundsson skrifa undir nál. með fyrirvara varðandi brtt. við 9. gr. þar sem þeir telja að yfirvélstjóri eigi að vera í hópi þeirra er ábyrgð skulu bera á að lögskipaðar skoðunaraðgerðir fari fram á skipum, svo sem gert er ráð fyrir í frv.
Meiri hluti samgn. leggur til þá breytingu að yfirvélstjóra sé ekki skylt að sjá um ásamt skipstjóra að lögskipaðar skoðanir fari fram á skipum. Við hv. þm. Guðni Ágústsson eins og ég sagði áðan erum sammála þeim er sömdu frv. en þeir voru, virðulegi forseti: Ragnhildur Hjaltadóttir skrifstofustjóri, Einar Hermannsson, fulltrúi Sambands íslenskra kaupskipaútgerða, Helgi Laxdal, varaforseti Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, Jónas Haraldsson, skrifstofustjóri LÍÚ, og Magnús Jóhannesson, þáv. siglingamálastjóri. Við hv. þm. Guðni Ágústsson erum sammála þeim mönnum er sömdu frv. og trúum því að það standi eitthvað á bak við það að þeir hafi talið nauðsynlegt að yfirvélstjóri fari einnig með þetta mál ásamt skipstjóra. Við erum sem sé sammála því að greinin standi óbreytt eins og hæstv. samgrh. Halldór Blöndal leggur til. Hér er að okkar áliti um mikið öryggismál að ræða fyrir sjómenn og ætti vonandi fremur að verða til þess að draga úr slysum um borð í skipum og styðjum við því að 9. gr. standi eins og hæstv. samgrh. leggur til. Við erum af þessum ástæðum á móti brtt. meiri hluta nefndarinnar á 9. gr. frv.