Aukaaðild að Vestur-Evrópusambandinu

163. fundur
Þriðjudaginn 27. apríl 1993, kl. 15:37:26 (7483)

     Frsm. meiri hluta utanrmn. (Björn Bjarnason) :
    Frú forseti. Ég flyt hér nál. meiri hluta utanrmn. um till. til þál. um aukaaðild að Vestur-Evrópusambandinu.
    ,,Nefndin hefur fjallað um tillöguna og fékk hún við þá umfjöllun ýmis gögn um málið frá utanríkisráðuneytinu. Einnig barst nefndinni ályktun um málið frá Varðbergi, félagi ungra áhugamanna um vestræna samvinnu. Þá komu á fund nefndarinnar Sigþrúður Gunnarsdóttir og Sveinn Rúnar Hauksson frá Samtökum herstöðvaandstæðinga.
    Meiri hluti nefndarinnar telur mikilvægt að Ísland gerist aukaaðili að Vestur-Evrópusambandinu og vill í því sambandi taka undir eftirfarandi kafla í ályktun Varðbergs um málið frá 22. mars sl.:
    ,,Varðberg, félag ungra áhugamanna um vestræna samvinnu, telur það þjóna öryggishagsmunum Íslands að ríkisstjórn Íslands staðfesti aukaaðild að Vestur-Evrópusambandinu og taki virkan þátt í að fylgjast með og móta öryggis- og varnarmál Evrópu. Aukaaðild Íslands að Vestur-Evrópusambandinu ásamt aðild annarra ríkja Atlantshafsbandalagsins tryggir að sjónarmið NATO-ríkjanna hafi áhrif á stefnumótun Vestur-Evrópusambandsins þannig að Evrópubandalagið verði ekki einrátt í varnar- og öryggismálaumræðu Vestur-Evrópu.``
    Meiri hluti nefndarinnar leggur til að tillagan verði samþykkt.``