Ólafur Þ. Þórðarson
:
Herra forseti. Fyrst verður að sjálfsögðu að óska hv. flm. til hamingju með það að þar fara sjálfstæðir og frjálsir menn sem ekki telja sig þurfa að biðja leyfis þó þeir flytji þáltill. inn í sali þingsins. Það er nú svo með hv. 1. flm. að hann hefur stundum verið nokkuð djarfur þegar hin skráðu lög hafa verið annars vegar en nú eru hin óskráðu lög brotin og utanrrh. kvartar sáran hér úr ræðustól yfir því. Hann getur þó alls ekki kvartað, hæstv. utanrrh., yfir því að hér er þó að finna greinargóðar upplýsingar um Kína sem hljóta að koma hæstv. ráðherra að gagni í allri framhaldsumfjöllun um þetta mál.
Auðvitað hefur hæstv. utanrrh. lesið þetta mjög grannt yfir þó að hann hiki við að tala um eyðslu í sendiráðum Íslands í Evrópu nú. En það vill svo til að hæstv. utanrrh. á ýmsar merkar ræður í þingtíðindum þar sem hann talar um óþörf sendiráð og bruðl í utanríkisþjónustunni. Satt best að segja hlýtur það að vera næsta verkefni hv. 1. flm. að fletta þessum ræðum upp og koma þeim á framfæri við hæstv. utanrrh. svo hann hugleiði það nú í ljósi sinna fyrri greinargerða um þessi mál að e.t.v. sé hægt að spara einhvers staðar í Evrópu. Það er nú einu sinni svo að Evrópa er ekki eina heimsálfan, ekki stærsta heimsálfan og ekki merkilegasta heimsálfan heldur. Ef Ísland vill reka utanríkismálastefnu eins og Ísland hlýtur að vilja þá hlýtur það að vera okkar metnaður að eiga einhvers staðar sendiráð í Asíu, það er sjálfgefið. Og ég vil taka undir það með 1. flm. að það hlýtur að vera rökrétt að það sendiráð sé staðsett í Peking. Nú er ég ekki að hugsa um lakkrísverksmiðjur eða nokkurn skapaðan hlut slíkt, ég held bara að hv. 1. flm. hafi með réttu áttað sig á því að þó íslenska ríkið mundi ekki græða í virðisaukaskatti ef við færum að flytja vörur frá Kína í stórum stíl til að selja þær í verslunum á Íslandi þá mundu íslenskir neytendur hagnast á því tiltæki, það fer ekkert á milli mála. Og það er svo að í ýmsum verslunum á höfuðborgarsvæðinu eru seldar vörur frá Kína, m.a. skór.
Ég er sannfærður um það að þessi tillaga sem hér er flutt --- upplýst að sé bort á óskráðum lögum að flytja hana --- á eftir að verða þess valdandi að við eigum eftir að setja upp utanríkisþjónustu í Kína, það er aðeins tímaspursmál hvenær það verður og hvort hv. flm. gengur svo langt í stuðningi sínum við tillöguna að hann beiti sér fyrir að skipta um utanrrh. veit ég að sjálfsögðu ekki enn.