Lagaákvæði er varða samgöngumál

164. fundur
Miðvikudaginn 28. apríl 1993, kl. 19:40:54 (7585)


     Frsm. meiri hluta samgn. (Pálmi Jónsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Í frv. þessu segir í 4. gr., með leyfi forseta, um lög um eftirlit með skipum, nr. 51/1987, með síðari breytingum. Þar kæmi væntanlega inn í prentun nýtt númer:
    ,,Við 1. gr. laganna bætist ný málsgrein sem orðist svo:`` Síðan kemur sá texti sem hér er í þskj. og er ekki tilefni eða ástæða til að lesa. Þessi grein bætist við 1. gr. laganna eins og 1. gr. laganna er nú.