Lagaákvæði er varða samgöngumál

164. fundur
Miðvikudaginn 28. apríl 1993, kl. 19:45:03 (7589)


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseti hefur hlýtt með athygli á þær athugasemdir sem hér hafa fram komið og rætt við starfsmann þingsins. Forseti vill beina þeirri ósk til hv. formanns nefndarinnar að málið fari aftur til hv. samgn. þegar þessari umræðu er lokið og þar til 3. umr. fer fram og væntir forseti þess að samstaða verði um það.