Heimild til að selja jörðina Lönguhlíð í Vallahreppi

166. fundur
Fimmtudaginn 29. apríl 1993, kl. 13:43:25 (7644)

     Frsm. landbn. (Egill Jónsson) :
    Virðulegi forseti. Landbn. hefur fjallað um frv. sem flutt er af þingmönnum Austurl., fjórum að

tölu, um heimild fyrir ríkisstjórnina að selja jörðina Lönguhlíð í Vallahreppi. Fyrir lá að jarðanefnd Suður-Múlasýslu hefur mælt með því að þessi heimild yrði veitt og enn fremur bárust meðmæli frá sveitarstjórninni í Vallahreppi með því að þessi jarðasala gengi fram.
    Til frekari áréttingar vísa ég til framsöguræðu hv. 2. þm. Austurl. og greinargerðar með frv. sem áður er til vitnað til frekari skýringar á þessu máli.
    Undir nál. rita nöfn sín allir nefndarmenn landbn. Alþingis.
    Ég sé ekki, virðulegi forseti, ástæðu til þess að fara fleiri orðum um þetta mál. ( KHG: Mælir nefndin með samþykkt þess?) Já.