Atvinnu- og búseturéttur launafólks innan EES

166. fundur
Fimmtudaginn 29. apríl 1993, kl. 14:07:04 (7650)


     Kristinn H. Gunnarsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vil þakka formanni nefndarinnar fyrir undirtektir sem voru skýrar af hans hálfu að málið yrði tekið fyrir í nefnd milli 2. og 3. umr. ef gera þyrfti breytingar á því fskj. sem er með brtt. Ég óska hins vegar eftir því að það liggi fyrir áður en þessari umræðu lýkur hvort nauðsynlegt er að gera þessar breytingar eins og fram kemur í skýrslu utanrrn. þannig að vissa liggi fyrir því að málið fari til nefndar áður en þessari umræðu lýkur því ég hygg að það sé raunar aðeins formsatriði að fá þá staðfestingu sem formaður nefndarinnar hafði sem fyrirvara að vantaði.