Tvíhliða samskipti við Evrópubandalagið

166. fundur
Fimmtudaginn 29. apríl 1993, kl. 21:44:37 (7692)

     Hjörleifur Guttormsson (um þingsköp) :
    Virðulegur forseti. Ég tel það mjög einkennilegt ef fresta á umræðu um tillöguna nema þá um skamma hríð vegna funda eða þess háttar. Þá hefði verið nær að draga það að mæla hér fyrir málinu. Ég skil ekki vinnubrögð af þessum toga og óska eftir því að umræða verði hér um málið þó svo henni verði ekki lokið og það finnst mér eðlilegt.