Jón Kristjánsson
(andsvar)
:
Frú forseti. Það hefur að sjálfsögðu verið ágæt vinna í félmn. varðandi þetta mál. Það hefur ekkert skort á það, enda reynir formaður félmn. að kalla til alla aðila sem beðið er um og upplýsa mál eins og best verður á kosið og ég vil þakka það og störfin í nefndinni. Það er ekkert upp á það að klaga. En hins vegar hef ég ekki komist hjá því frekar en aðrir nefndarmenn að horfa upp á dapurleika fulltrúa Sjálfstfl. í nefndinni þó að hv. formaður af umhyggju vilji draga úr því. Það er ekki ástæða til að orðlengja um það hér. En ég átti ekki við það með því að segja að hér væri ekkert að ske á Alþingi að hér væri ekki nóg af málum. Það er nóg af málum og 30--40 mál hér á dagskrá á hverjum degi. En hins vegar er ekkert að ske varðandi kjarna málsins, afkomu atvinnuveganna í landinu og atvinnuástandið í landinu. Það virðist ekki ná inn fyrir þessa þykku veggi hér. Það er það sem ég átti við og það eru engar tillögur á döfinni frá hæstv. ríkisstjórn í þeim málum. Hins vegar eru bunkar hér og staflar á borðunum af málum, en þau snerta ekki þessi atriði. Það er það sem er að.