Afgreiðsla allsherjarnefndar á frv. til skaðabótalaga

167. fundur
Föstudaginn 30. apríl 1993, kl. 12:32:40 (7728)


     Rannveig Guðmundsdóttir :
    Virðulegi forseti. Í tilefni af orðum hv. 5. þm. Vestf. vil ég taka það fram að ég var nú að svara hv. 2. þm. Austurl. um vinnu og samvinnu milli stjórnarflokkanna í félmn. og ætla mér ekki að fara í einkunnagjöf eða yfirlýsingar um hvernig samstarfi sé háttað almennt í nefndum, en get sagt það hér að það er ágætt samstarf í nefndunum sem ég er í og þær eru allnokkrar.