Almennar stjórnmálaumræður (útvarpsumr.)

168. fundur
Mánudaginn 03. maí 1993, kl. 20:35:30 (7775)

     Steingrímur Hermannsson :
    Virðulegi forseti. Góðir Íslendingar. Tími minn leyfir ekki að ræða gerðir þessarar ríkisstjórnar eins ítarlega og ég hefði kosið og ég tel reyndar þörf á. Ég vil reyndar leyfa mér að fullyrða að engin ríkisstjórn hafi unnið sinni þjóð meira tjón en þessari hefur tekist á tveimur árum.
    Ég er ekki að gera lítið úr þeim erfiðleikum sem stafa að íslensku efnahagslífi og sannarlega má rekja að nokkru til minnkandi þorskafla og erfiðleika á erlendum mörkuðum, en staðreyndin er hins vegar sú að við Íslendingar höfum iðulega staðið frammi fyrir slíkum erfiðleikum. Og þá höfum við borið gæfu til þess að leggja deilumálin yfirleitt til hliðar og snúa bökum saman, stjórnvöld, launþegar, atvinnurekendur og bændur, og vinna okkur út úr erfiðleikunum. Reyndar er enginn vafi á því að þannig höfum við unnið okkur frá fátækt til velmegunar. Nú er svo sannarlega brotið í blað að þessu leyti. Sú ríkisstjórn sem nú situr hefur hafnað þeirri samstöðu sem henni var boðin.
    Við viljum gjarnan kenna lánleysi þessarar ríkisstjórnar stefnuleysi hennar en það er mikill misskilningur. Það er ekki stefnuleysi sem ræður, það er stefna ríkisstjórnarinnar að eiga ekki samstöðu með aðilum vinnumarkaðarins til þess að leysa þau vandamál sem að steðja. Það er stefna þessarar ríkisstjórnar að hafa ekki afskipti af atvinnurekstrinum eða atvinnuleysinu í landinu. Reyndar má segja að þetta hafi komið hvað gleggst fram í stefnuræðu hæstv. forsrh. sl. haust þegar hann lýsti því sem broti á hinni hreinu stefnu ríkisstjórnarinnar að beita lítillega ríkisstjórninni fyrir því að flýta framkvæmdum í vegamálum til að draga úr atvinnuleysi. Stílbrot kallaði hæstv. forsrh. það.
    Hæstv. forsrh. talaði mikið um fortíðarvandann í upphafi síns stjórnarferils. Hann er að vísu að mestu hættur því nú, enda sýna tölur Þjóðhagsstofnunar að þessi ríkisstjórn tók við góðu búi. Tölur Þjóðhagsstofnunar sýna t.d. að á árinu 1990 var íslenskur iðnaður með betri afkomu en hann hafði verið allan áratuginn á undan og tölur Þjóðhagsstofnunar sýna sömuleiðis að afkoma sjávarútvegsins var með því besta sem hún hafði verið allan áratuginn. Við vorum að fá í dag skýrslu Þjóðhagsstofnunar og þar kemur fram að því er spáð að íslenskur sjávarútvegur verði nú rekinn með 9% halla og að 8 milljarða halli verði á íslensku atvinnulífi. Þetta hefur ríkisstjórninni tekist með stefnu sinni á að aðeins tveimur árum.
    Tölur Þjóðhagsstofnunar sýna einnig að síðustu ríkisstjórn tókst að koma í veg fyrir stórvaxandi atvinnuleysi. En atvinnuleysið hefur vaxið hröðum skrefum síðan þessi ríkisstjórn tók við og er nú orðið yfir 4% vinnufærra manna og reyndar eru margir sem telja að atvinnuleysingjar séu drjúgum fleiri en þar er talið. Við stefnum óðum að því að vera með atvinnuleysingja hér á landi álíka marga og verið hafa í Bandaríkjunum. Reyndar vil ég leyfa mér að spyrja hæstv. forsrh. að því hvort hann sé sammála formanni

bankaráðs Seðlabankans sem fullyrðir að það sé engin ástæða til að ætla að atvinnuleysi verði minna hér á landi en í Evrópuríkjunum. Eða er hann kannski sammála frjálshyggjudrengnum sem sagði á fundi Verslunarráðs að brýnasta verkefnið væri nú að kenna Íslendingum að vera atvinnulausir.
    Tölur Þjóðhagsstofnunar sýna einnig að í lok ársins 1990 hafði tekist að stöðva erlenda skuldasöfnun en síðan þessi ríkisstjórn tók við hafa erlendar skuldir vaxið hröðum skrefum og nálgast nú að vera um 60% af vergri landsframleiðslu. Og það sem er reyndar alvarlegra er að greiðslubyrðin stefnir í að verða um 30% af gjaldeyristekjum íslensku þjóðarinnar. Og þó lýsir forsrh. því yfir stöðugt að ekki komi til greina að taka erlend lán.
    Ríkisstjórnin hefur verið stefnu sinni trú og gæti ég nefnt fjölmörg dæmi um það. Ríkisstjórnin hefur t.d. skert svo möguleika Byggðastofnunar til að taka á byggðavanda sem víða steðjar að að heita má að hún sé algjörlega máttlaus í því sambandi. Það hefur t.d. reynst algjörlega tilgangslaust fyrir fyrirtæki á Suðurnesjum, þar sem atvinnuleysið er hvað mest, að leita til Byggðastofnunar. Byggðastofnun hefur reyndar gjarnan vísað slíkum fyrirtækjum á fyrirheit hæstv. forsrh. um 500 millj. aðstoð vegna atvinnuleysis á Suðurnesjum og vildi ég gjarnan mega spyrja hæstv. forsrh.: Hvar eru þessar 500 millj.? Byggðastofnun er algjörlega máttlaus að taka á slíkum stórkostlegum vandamálum eins og nú blasa við í Bolungarvík og fleiri dæmi gæti ég nefnt.
    Ríkisstjórnin hefur einnig hætt allri aðstoð við nýsköpun í íslensku atvinnulífi. Ríkisstjórnin hefur selt hlut sinn í Þróunarfélagi Íslands og mér er ekki kunnugt um að þeir sem vilja ráðast í nýjan atvinnurekstur hafi í nokkurt hús að venda um fjarhagslega aðstoð. Ríkisstjórnin hefur nokkurn veginn fellt niður fjárhagslega þátttöku sína í markaðsstarfsemi íslensks atvinnulífs. Hún tekur aðeins með tveggja milljóna framlagi þátt í starfi Útflutningsráðs nú. Ríkisstjórnin lofaði að vísu verulegu framlagi til rannsókna- og þróunarstarfsemi en mér er ekki kunnugt um að nokkuð af því hafi verið haldið. Nei, það hefur að því er ég best veit allt verið svikið. Líklega kom stefna ríkisstjórnarinnar þó aldrei gleggra fram en þegar hún hafnaði þeirri þjóðarsátt sem henni var boðin. Ég vil satt að segja leyfa mér að fullyrða að aldrei hafi íslenskt atvinnulíf rétt fram höndina svo sem gert var nú. Og það vakti satt að segja furðu, þegar trúnaðarmaður hæstv. forsrh. hafði í innsta hring fylgst með gangi þeirra mála, að það tók ríkisstjórnina einn mánuð að segja nei. Um hvað báðu aðilar vinnumarkaðarins? Báðu launþegar um launahækkanir? Nei. Launþegar báðu um lækkun á nauðsynjavöru til að bæta kaupmátt þeirra sem lægst launin hafa. En ríkisstjórnin hafnaði því að taka upp strax annað þrep í virðisaukaskattinum. Launþegar báðu um það að ríkisstjórnin legði eins og 2 milljarða kr. til að bæta atvinnuástandið í landinu með því að ráðast í ýmsar framkvæmdir sem eru bráðnauðsynlegar. En ríkisstjórnin hafnaði því. Og launþegar og atvinnurekendur fóru fram á það að hjólum atvinnulífsins yrði gert fært að snúast á ný. Báðu þeir um gengisfellingu? Nei, þeir báðu ekki um það. Þeir báðu um það að kostnaður atvinnulífsins yrði lækkaður og þá fyrst og fremst vextir. En ríkisstjórnin sagði nei og svaraði á sinn venjubundna máta. Við ráðum ekki við vextina, það eru æðri náttúrulögmál.
    Mig langar til að spyrja hæstv. forsrh.: Hvers vegna hefur boði forustumanna lífeyrissjóðanna ekki verið tekið og sest niður og við þá rætt um átak til að lækka vextina? Hvers vegna ekki? Og hvers vegna, samkvæmt yfirlýsingu forsrh., hefur Seðlabankanum ekki verið beitt til þess að bjóða í ríkisskuldabréf og ríkisvíxla með vöxtum sem væru t.d. 5--6%? Er það virkilega svo að ríkisstjórninni þykir vænna um fjármagnseigendur og vill að þeir njóti hárra vaxta? Ég leyfi mér að fullyrða að ef vextir af ríkisskuldabréfum lækka í 5--6% munu vextir hjá lánastofnunum lækka um 1 / 3 eða um það bil. Þannig eru það æðimargar spurningar sem hæstv. forsrh. svarar vonandi á eftir eða greinir okkur á einn máta eða annan frá.
    Mig langar til að spyrja hvort ríkisstjórnin hafi engar áhyggjur af því að sjávarútvegurinn og atvinnulífið skuli verða rekið með svo miklum halla á þessu ári. Telur ríkisstjórnin að íslenskt gengi muni standast slíkan hallarekstur? Eða hvað vill hæstv. forsrh. segja um það sem Einar Oddur Kristjánsson segir í viðtali í DV núna fyrir helgina, að það stefni í 40 milljarða gjaldþrot í íslenskum sjávarútvegi? Hvernig lítur hæstv. forsrh. á það? Hefur hann engar áhyggjur af því? Væri það stílbrot á frjálshyggjustefnu hæstv. ríkisstjórnar að ríkisstjórnin beitti ótilneydd áhrifum sínum til þess að draga úr slíkum hörmungum? Nei, það er áreiðanlega ekki of sagt að þessi ríkisstjórn hefur á tveimur árum unnið þjóðinni meira tjón en nokkurn tíma hefur gerst áður. Og það er ekki að ástæðulausu að menn hafa af þessu vaxandi áhyggjur.
    En það er að sjálfsögðu ekki nóg að gagnrýna. Það verður einnig að benda á leiðir til að bæta. Við framsóknarmenn höfum rætt þetta ítarlega og birt það sem við viljum að gert verði til að bjarga íslensku þjóðarskútunni frá strandi. Við höfum birt það í riti sem við köllum Átak til endurreisnar. Við leggjum höfuðáherslu á að það verður að ná þjóðarsátt því að því aðeins mun takast að vinna okkur út úr þessum erfiðleikum að menn snúi bökum saman, stjórnvöld, launþegar, atvinnurekendur og bændur. Við erum þeirrar skoðunar að þjóðarsátt muni aldrei takast nema lífskjörin í landinu verði jöfnuð. Það er satt að segja óþolandi sem Þjóðhagsstofnun upplýsir, að sá fimmti hluti landsmanna sem er með hæstu tekjurnar er með hátt í 50% af atvinnutekjunum en sá fimmti hluti sem er með lægstu tekjurnar er með innan við 4%. Er eðlilegt að launþegar sætti sig við þetta? Þetta verður vitanlega að leiðrétta með hátekjuskatti og skatti á fjármagn og það er rétt að hafa í huga að í þessari tekjuskiptingu eru tekjur af fjármagninu ekki taldar með því að þær eru ekki skattskyldar. Og þetta fjármagn á að nota til þess að ráðast í framkvæmdir, til þess

að draga úr atvinnuleysinu og til þess að lækka kostnað á þeim vörum sem eru nauðsynlegastar fyrir heimilin í landinu.
    Við leggjum einnig mjög mikla áherslu á það að þegar verði ráðist í vaxtalækkun og með þeim leiðum sem ég nefndi áðan. Mér er alveg sama hvort menn kalla það handafl eða eitthvað annað. Það er unnt að lækka vexti hér á landi alveg eins og þjóðirnar í kringum okkur hafa gert og það verður að gera ef það á að bjarga íslenskum atvinnuvegum frá 8 milljarða tapi á árinu 1993 og sjávarútveginum frá hruni. Hvað ætlar hæstv. ríkisstjórn að gera í þessu? Við leggjum á það mikla áherslu að ríkisvaldið komi myndarlega inn í nýsköpun í atvinnulífinu. Það eru fjölmörg tækifæri og ég er sannfærður um að ef það er gert af myndarskap, þá eigum við Íslendingar fram undan betra líf í okkar landi en flestar aðrar þjóðir geta státað af.
    Við leggjum mikla áherslu á það að byggt verði á þekkingu, byggt verði á rannsóknun og aukið verði fjármagn til þess að efla starfsemina á slíkum sviðum. Ég hef stundum sagt að mér virðist eins og heimurinn standi á miklum tímamótum, eins konar hásléttu, og ég tel orðið tímabært að við Íslendingar förum að hugsa um það hvernig við ætlum að hasla okkur völl á þessari hásléttu, hvað við ætlum að verða. Ætlum við að verða láglaunaþjóð eins og nú stefnir í eða ætlum við að viðhalda þeim góðu kjörum sem við getum haft hér ef við vinnum af krafti að því að gera allt eins vel og við getum, eflum þekkinguna, rannsóknirnar, nýtum okkur hugvit þeirra fjölmörgu manna sem vilja leggja til sitt lið í því að skapa hér góð lífskjör. Það er sú leið sem við framsóknarmenn veljum og ég veit að það er sú leið sem þjóðin öll velur.
    Ég skal ekkert um það segja hvort það tekst að hrinda af þjóðinni því oki sem á henni hvílir nú eða hvort þjóðin þarf að þola það út kjörtímabilið. En það er áreiðanlega nauðsynlegt að búa sig undir að snúa gjörsamlega við blaðinu, skapa samstöðu hér með ríkisvaldi, launþegum, atvinnurekendum og bændum og vinna sig á ný upp til þeirra góðu lífskjara sem við nutum hér og getum notið til framtíðar. --- Ég þakka þeim sem hlýddu.