Jón Kristjánsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Hæstv. félmrh. telur að það hafi ekki verið lögbrot að leggja niður hönnunardeildina og telur að hún hafi verið á gráu svæði. En ég vil endurtaka það sem ég sagði í upphafi eða í fyrri ræðu minni í þessari umræðu að fjárlög knýja hæstv. félmrh. ekki út af fyrir sig til þess að framkvæma þessi ákvæði sem er verið að breyta. Það er mjög algengt að ákvæði séu samþykkt í fjárlögum og breytt svo síðar. Hvað þá að vera búin að segja fólkinu að því muni verða sagt upp áður en fjárlögin eru komin fram. Það finnst mér ekki góð latína svo ekki sé meira sagt.