Kristinn H. Gunnarsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Ég verð nú að segja að ég undrast það að hæstv. ráðherra fái ekki upplýsingar úr stofnuninni þegar formaður stjórnarinnar er sérstakur trúnaðarmaður ráðherrans. Og ég veit ekki annað en embættismenn stofnunarinnar veiti þeim trúnaðarmanni ráðherrans allar þær upplýsingar sem hann biður um. En hins vegar er ráðherrann ítrekað að bera það á embættismenn stofnunarinnar að þeir veiti ráðherranum ekki umbeðnar upplýsingar og það er mjög alvarlegt mál. Það er svo alvarlegt að ég tel nauðsynlegt að fara fram á það að félmn. komi saman og kalli fyrir sig þessa embættismenn og fulltrúa ráðuneytisins og óski eftir því að embættismennirnir gefi skýringar á því hvers vegna þeir veita ráðherranum ekki upplýsingar sem hann biður um. Það er ólíðandi ef embættismennirnir gera það ekki sem þeim ber og ef það gengur ekki að óbreyttum lögum, þá verður hv. félmn. að breyta lögunum. Því ítreka ég þessa kröfu mína, virðulegi forseti.