Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) :
Hæstv. forseti. Ég vil að það komi fram að nú um tveggja ára skeið hafa staðið yfir aðgerðir sem grundvallast á tillögum sérfræðinga Veiðimálastofnunar sem ganga í þá átt að draga úr sveiflum í Þingvallavatni. Þessar aðgerðir eru unnar í fullu samkomulagi við vatnabændur sem raunar sneru sér upphaflega til landbrn. út af þessu máli og hefur landbrn. vitaskuld beitt sér fyrir því að draga úr þessum sveiflum.
Á hinn bóginn er það auðvitað fjárhagslegt mál hversu langt er gengið í því að knýja Landsvirkjun til þess að hætta að nota Þingvallavatn sem miðlunarlón og er auðvitað sjálfsagt að athuga það nú, ekki síst þegar orkubúskapnum er háttað eins og nú er, hvort ekki sé hægt að hætta því með öllu. Í fljótu bragði virðist svo vera og mun ég að sjálfsögðu ræða það mál við Landsvirkjun.