Útvarpslög

172. fundur
Fimmtudaginn 06. maí 1993, kl. 16:13:10 (8031)

     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Að gefnu tilefni þá finnst mér sjálfsagt að síðasti ræðumaður upplýsi hverjir séu menningarlegar sinnaðir í þingflokki Sjálfstfl. en sá þingmaður sem hér talaði áðan og ég tel að standi mjög vel undir þeirri nafnbót að vera menningarlegast sinnaður af þingmönnum Sjálfstfl. Þannig að ég vil eiginlega óska eftir svörum um þetta.