Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson)
:
Virðulegi forseti. Það eru um 2.000 manns sem eiga atvinnu sína á Suðurnesjum undir starfsemi varnarliðsins, verktaka í þjónustu varnarliðsins eða annarra viðskiptaaðila. Ég gæti trúað að þetta fólk, ef það mætti heyra málflutning talsmanna Alþb. og Kvennalista og vinstri arms Framsóknar, legði dálítið hlustir við og undraðist hræsni og tvískinnungshátt þessara svokölluðu málsvara þjóðfrelsis á Íslandi. ( ISG: Hvað heldurðu að margar konur . . . ) Við gætum búist við því að þetta fólk kæmi nú og fagnaði alveg sérstaklega ef það tryði þeim tíðindum að hér væri að draga að því að varnarliðið færi úr landi. Nei, í staðinn fyrir að lýsa fögnuðinum, þá ber þetta fólk fyrir sig að það hafi nú einkum og sér í lagi þungar áhyggjur af atvinnu þess fólks sem starfar við þessar atvinnugreinar. ( Gripið fram í: Að sjálfsögðu.) Og talsmenn Alþb. koma hér fram, (Gripið fram í.) dirfast að koma hér fram og segja að Alþb. hafi lagt fram einhverjar tillögur. Staðreyndin er sú að þegar reynt hefur verið að halda samningsaðilum okkar að því að fjármagna umsamdar framkvæmdir, þá hafa talsmenn Alþb. fordæmt það og kallað það að fara með betlistaf til erlendra aðila. ( Gripið fram í: Að sjálfsögðu.) Og í annan stað, þegar gerðar hafa verið ráðstafanir til þess að tryggja íslensku atvinnulífi ný útflutningstækifæri eins og t.d. með EES-samningnum sem gæti gerbreytt hlutverki Keflavíkurflugvallar og orðið lyftistöng fyrir sjávarútveg á Suðurnesjum, þá hefur gervöll stjórnarandstaðan fordæmt það. Og í þriðja lagi þegar unnið hefur verið að því að hrinda í framkvæmd hugmyndum um frísvæði á Suðurnesjum sem nýtti þá aðstöðu sem þar er og byggir á forsendum EES-samningsins, þá hefur þessi stjórnarandstaða fordæmt það, þannig að ég segi ósköp einfaldlega í sambandi við þessar svokölluðu áhyggjur sem þetta fólk lýsir yfir . . . (Gripið fram í.) Ég lýsi því yfir: Vei yður, þér hræsnarar --- þér hræsnarar. (Gripið fram í.) Ég hef verið að lýsa því hvað við höfum verið að gera ( Gripið fram í: Nei.) og stjórnarandstaðan hefur fordæmt það og hneykslast á því og hefur ekki efni á því að segja eitt einasta orð um atvinnu fólks á Suðurnesjum og ætti að hafa sem fæst orð um það og skammast sín.