Virðulegi forseti. Hv. 2. þm. Vestf. sagði í ræðustól hér áðan: Þetta rugl er ekki boðlegt, og ég er alveg sammála honum um það. Allt þetta rugl sem fram fer hér á hinu háa Alþingi í skjóli misnotkunar á þingsköpum, öll þessi umræða um þingsköp sem er ekki um þingsköp er auðvitað tómt rugl og er löngu kominn tími til að virðulegur forseti og forsætisnefnd og formenn þingflokka hugi að þessari misnotkun vegna þess að hún setur ákveðinn leiðindasvip á störf Alþingis Íslendinga. Þetta er misnotkun á þingsköpum. Og ef það væri nú svo að ákveðnir menn hér --- það eru svona 6, 7, 8 manns (Gripið fram í.) sem sérhæfa sig í þessari misnotkun, ef það væri rétt að einstakir aðilar, einstakir persónuleikar í þeim hópi, (Gripið fram í.) þessi t.d. getur aldrei látið vera að grípa fram í, aldrei, það er hans fasta regla, hann situr þarna til þess --- ef þessir menn, t.d. þessi frammíkallari, ef það væri rétt að hann væri búinn að tala
svona 100 sinnum í vetur um þingsköp en ekki um þingsköp heldur til þess að misnota þingskapareglur með þessum hætti, þá er kominn tími til fyrir forseta að grípa í taumana. Vegna þess að ef þetta væri allt saman satt að þessir 6, 7, 8 skæruliðar gegn þingsköpum sem hér vaða uppi (Gripið fram í.), ef þeir hefðu rétt fyrir sér, þá væri það satt að segja alveg skuggaleg gagnrýni á störf forseta. Þeir væru alltaf hér uppi um þingsköp, þingsköp, þingsköp sem er þó um það að segja virðulegum forseta eitthvað til verka sem þeir eru að sjálfsögðu ekki að gera. Þeir eru bara að misnota þingsköpin, ganga á lagið, eins og óknyttamenn gjarnan gera í bekk sem er illa siðaður. ( SvG: Galnir terroristar og óknyttnir.) Nú veit ég það að ég hef ekki rétt til þess, virðulegi forseti, að svara þeim ávirðingum sem bornar voru á mig bæði af hv. þm. Svavari Gestssyni og hv. þm. Páli Péturssyni. (Gripið fram í.) Ég veit það að samkvæmt þingsköpum hef ég það ekki. Þeir eru hins vegar búnir að taka sér þennan rétt í allan vetur svo nemur hundruðum skipta og er nú kominn tími til að þeir láti af því. ( SvG: Aumingja karlinn.)