Samþykkt um votlendi

174. fundur
Föstudaginn 07. maí 1993, kl. 10:05:36 (8129)

     Frsm. utanrmn. (Björn Bjarnason) :
    Frú forseti. Ég mæli fyrir áliti utanrmn. á þskj. 1112 um till. til þál. um staðfestingu breytinga á samþykkt um votlendi sem hefur alþjóðlegt gildi, einkum fyrir fuglalíf.
    Nefndin fjallaði um tillöguna og fékk á sinn fund til viðræðna um efni hennar Jón Gunnar Ottósson, skrifstofustjóra í umhvrn., og Þóri Ibsen, deildarsérfræðing í umhvrn. Þá barst nefndinni umsögn um málið frá umhvn. sem gerir ekki athugasemd við samþykkt tillögunnar.
    Nefndin mælir einróma með samþykkt tillögunnar.