Fríverslunarsamningur milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Póllands

174. fundur
Föstudaginn 07. maí 1993, kl. 10:10:31 (8133)

     Frsm. utanrmn. (Björn Bjarnason) :
    Frú forseti. Ég mæli fyrir áliti utanrmn. á þskj. 1127 um till. til þál. um fullgildingu fríverslunarsamnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og lýðveldisins Póllands.
    Nefndin fjallaði um tillöguna og fékk á sinn fund til viðræðna um efni hennar Árna Kolbeinsson, ráðuneytisstjóra í sjútvrn., Sigurgeir Þorgeirsson, aðstoðarmann landbrh., Jóhann Guðmundsson, deildarstjóra í landbrn., og Gunnar Snorra Gunnarsson, skrifstofustjóra í utanrrn.
    Utanrmn. mælir einróma með samþykkt tillögunnar en hv. þm. Hjörleifur Guttormsson ritar undir nál. með fyrirvara.